Borði
Borði

Fróðleiksmolar

Starfsmenn RIVUS hafa samtals yfir 100 ára reynslu af byggingarframkvæmdum.

Þjónusta í boði
  • Lekaþéttingar

    Rivus hefur nú fest kaup á búnaði til epoxyþéttinga og hafa sérfræðingar fyrirtækisins farið ítarlega yfir hvernig standa skuli að Epoxyþéttingum. RIVUS býður nú almenningi upp á þessa þjónustu, gegn vægu gjaldi, sjá verðskrá.
  • Ástandsskoðun

    Astandsskodun.pngRIVUS tekur að sér að skoða húsnæði og leggja mat á viðhaldsþörf þess. Sérfræðingar RIVUS hafa viðamikla þekkingu á þessu sviði.
  • Hönnun

    contentphoto-design.pngRIVUS hefur á að skipa tæknimenntuðum mönnum sem geta séð um hönnun á lögnum og lagnkerfum. Sem dæmi um hönnunarverkefni má nefna Hitalagnir, Neysluvatnslagnir, Snjóbræðsla, Gólfhitakerfi og Rör í rör kerfi.
  • Verkefnisstjórnun

    Verkefnastjornun.pngRIVUS hefur á að skipa öflugu liði tæknimanna sem geta tekið að sér yfirstjórn stórra verkefna. Samanlög reynsla stjórnenda er um 10 ár og velta þeirra verkefna sem stjórnað var á þeim tíma nemur um 8 milljörðum króna.
  • Pípulagnir

    Pipulagnir.pngRIVUS hefur einsett sér að fylgjast vel með tækninýjungum er snúa að efni og aðferðum við lagningu á nýjum lögnum og lagnakerfum. Starfsmenn fyrirtækisins sækja reglulega sérhæfð námskeið til að viðhalda þekkingu sinni og bæta jafnt og þétt við hana.
  • Fráveitulagnir

    contentphoto-blank.pngRIVUS hefur aflað sér sérfræðiþekkingar á fráveitulögnum. Fyrirtækið hefur á að skipa öflugri starfsheild sem getur unnið að lausn flókinna verkefna sem krefjast mikillar þekkingar og reynslu.
Lekaþéttingar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Rivus hefur nú fest kaup á búnaði til epoxyþéttinga og hafa sérfræðingar fyrirtækisins farið ítarlega yfir hvernig standa skuli að Epoxyþéttingum. RIVUS býður nú almenningi upp á þessa þjónustu, gegn vægu gjaldi, sjá verðskrá.
 
Átak gegn leka Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Nú bjóðum við upp á nýja þjónustu, þar sem boðið er upp á heimsókn sérfræðings til að meta viðgerðarþörf vegna leka. Skoðunin er framkvæmd af tæknifræðing sem hefur mikla reynslu af því að finna leka og skilgreina leiðir til þéttingar. Fyrsta skoðun fer fram með sjónmati á staðnum og eru gerðar tillögur um frekari skoðanir/aðgerðir, sé þeirra þörf. Þau atriði sem eru skoðuð eru:

  • Veggir og loft, útfellingar og máling
  • Gluggar gler og hurðir
  • Eins er rætt við húsráðendur um ástand lagna og hitakerfis.
 
Hitakerfi Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

hver.jpgHér áður fyrr Þótti það ókostur að búa nálægt jarðhitasvæðum, af þeim skapaðist ekkert nema slysahætta. Algengt var að börn slösuðuð við leik sinn nærri hverum og jafnvel biðu bana. Í dag þykir búseta nærri jarðhitasvæðum kostur, enda til aðrar leiðir, en búferlaflutningur til að forðast slys á heitu vatni.

Nú á dögum þykir sjálfsagt mál að hafa heitt vatn rennandi í krönum hvers einasta húss og ef ekki er jarðhiti á svæðinu, er leitast við að koma upp fjarvarmaveitu, s.s. með brennslu á sorpi, eða þá að settar eru upp hitatúbur í húsum til að tryggja heitt rennandi vatn í húsum. Hér áður fyrr var notast við olíu til upphitunar á vatni, en í dag er rafmagnið mun algengari. Allt þetta miðast að því einu að auka vellíðan þeirra sem í húsunum dvelja.

Kostnaður við að hafa heitt rennandi vatn í húsum er mjög misjafn eftir landssvæðum. Þar sem kostnaður við heita-vatnið er mikill, sjá menn eftir hverjum dropa og reyna allt sem hægt er til að spara. Það er háð hitakerfi hvers húss hvaða aðferðum er rétt að beita til að ákvarða sparnaðarleiðir. Við hjá RIVUS bjóðum upp á ástandsmat hitakerfa og

Lesa meira...
 
Þjónusta samdægurs Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

10oclock.jpgVið hjá RIVUS leggjum metnað okkar í að veita hraða og góða þjónustu. Til að ná því marki bjóðum við upp á þá þjónustu að ef hringt er á virkum dögum fyrir klukkan 10:00 um morguninn, þá færðu heimsókn samdægurs af sérfræðingi okkar. Ef við komumst ekki einhverra hluta vegna samdægurs, þá bjóðum við upp á samskonar heimsókn næsta virka dag, en þá ókeypis, sem einskonar skaðabætur. Verð fyrir heimsókn sem þessa er að finna í verðskránni, sem að sjálfsögðu er á netinu.

 
Lagnskoðun - 108 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Póstnúmar 108

Á næstu vikum verður RIVUS með skoðunarátak í póstnúmeri 108. Af því tilefni bjóðum við húseigendum upp á ókeypis ástandsmat pípulagna út ágúst 2008. Þú hringir og við mælum okkur mót og finnum út hvort úrbóta sé þörf á þínu heimili. Kostnaðaráætlun getur fylgt án frekari skuldbindinga.