Höfum tekið að okkur stór og lítil verk fyrir jafnt opinbera sem einkaaðila. Óháð verkkaupa er það einlægur ásetningur okkar að veita toppþjónustu á sem bestu verði. Í okkar huga innifelur toppþjónusta snyrtilegan umgang allan verktímann. Við viljum að einstaklingar þurfi ekki að hringja útum allan bæ í leit af mismunandi iðnaðarmönnum heldur bjóðum við minni verkkaupum upp á heildarlausnir við endurbætur á húsnæði.

Fróðleiksmolar

Kurteisi er eitt af einkennisorðum fyrirtækisins. Starfsmönnum RIVUS er uppálagt að sýna sérstaka tillitsemi þegar unnið er inni á heimilum fólks.


Hvað gerum við?



Við sinnum stórum og litlum verkum.

Í stórum útboðsverkum tökum við að okkur allt sem viðkemur lagnakerfum:
Fráveitu-, dren-, hita- og neysluvatnslögnum ásamt vatnsúðakerfi.

Í minni verkum reynum við eftir fremsta megni að bjóða verkkaupa upp á heildarlausnir á einum stað – hjá RIVUS.
Ef við höfum ekki yfir að ráða þjálfuðum mönnum í ákveðna tegund verka þá einsetjum við okkur að útvega þá.
Við lítum á það sem skyldu okkar að lágmarka umstang viðskiptavina okkar.
 

Leitaðu á vefnum okkar