Fróðleiksmolar
Kurteisi er eitt af einkennisorðum fyrirtækisins. Starfsmönnum RIVUS er uppálagt að sýna sérstaka tillitsemi þegar unnið er inni á heimilum fólks. |
|
|
|
Hvað gerum við?
Við sinnum stórum og litlum verkum.
Í stórum útboðsverkum tökum við að okkur allt sem viðkemur lagnakerfum:
Fráveitu-, dren-, hita- og neysluvatnslögnum ásamt vatnsúðakerfi.
Í minni verkum reynum við eftir fremsta megni að bjóða verkkaupa upp á heildarlausnir á einum stað – hjá RIVUS.
Ef við höfum ekki yfir að ráða þjálfuðum mönnum í ákveðna tegund verka þá einsetjum við okkur að útvega þá.
Við lítum á það sem skyldu okkar að lágmarka umstang viðskiptavina okkar. |
|
|